mánudagur, 11. maí 2015

Frá Vilmundi Hasen

Heimagerður rótarhvati
Auðvelt er að búa til rótarhvata fyrir sumargræðlinga úr ungum víði- eða aspargreinum. Börkurinn er skafinn utan af greinunum og marinn dálítið. Síðan er hellt upp á hann sjóðandi vatni eins og te og látið kólna. Hæfilegt magn af berki í einn lítra af vatni er á stærð við hænuegg, sé honum hnoðað saman. Þegar seyðið hefur kólnað eru græðlingarnir látnir standa í því yfir nótt og þeim síðan stungið í rætingarílát með rökum græðlingasandi.
Virka efnið í blöndunni er salisýlsýra (víðisýra) sem finnst í víði og ösp. Áður fyrr var víðibörkurinn notaður til að lina verki. Nú á tímum er í staðinn notuð asetýlsalisýlsýra sem gerð er í lyfjaverksmiðjum og seld í töfluformi sem aspirín eða magnýl. Hugsanlega gæti gert sama gagn að mylja eina aspirín- eða magnýltöflu út í volgt vatn og fara síðan eins að með græðlingana.

sunnudagur, 3. maí 2015

Gulrætur 2015

Dreifði sex metra löngum borða í fiskikörin mín tvö síðasta dag aprílmánaðar. Þar sem sólin hafði ekki náð að skína í kassana var moldin ennþá frosin en ég setti bara þar sem hún var orðin mjúk. Hér eru flottar hugmyndir fyrir næsta vor

laugardagur, 2. maí 2015

2.maí


Svitaslöngur komnar í beðin
 Lúsugu rósinni hent út og settur ræfilslegur Sypris í staðinn

 Blæjuberin myndast hvert af öðru

 Blæjuberjaplantan er hjá vínviðnum

 Vínviðurinn kemur með mikið af berjum þetta árið
 Man ekki hvað þetta sígræna skraut heitir

 Keyptum tvær tómataplöntur í Garðheimum um daginn

 Þær eru mjög duglegar

 Hindberja/brómberjaplantan sem Heiðrún Huld gaf okkur, lítil og ræfilsleg ennþá

 Sama planta, annað sjónarhorn

 Gestur setti niður sítrónusteina og plantan er mjög dugleg. Ég setti aðra af sömu tegund við hliðina í dag ef ske kynni að einhvern tíman gerist eitthvað þá eru þær alla vega tvær 

 Svakalegir broddar á henni

 Eplasteinn var setttur niður og upp spratt þessi flotta planta. Setti aðra við hliðina í dag ef ske kynni að þær vildu mynda aldin í fyllingu tímans. Maður veit aldrei hvað gerist í framtíðinni

 Blöðin á eplatrénu sem kom frá leikskólanum við ströndina

 Stevían lifir þriðja árið sitt, er í botnlausum potti

 Þessi planta óx upp af avokadó steini. Búin að klippa blöðin af því ranabjallan hefur étið þau svo illa

 Var að færa plöntuna og hér er helmingur steinsins sem hún spratt upp af

 Goji berjaplanta sem Heiðrún gaf okkur

 Svitaslangan byrjuð að virka og vifta með hitastilli komin í gang

Séð yfir vinstri hliðina

Vínberin að mótast

Vínviðurinn okkar

Sítrónutréð og vaxblóm frá Háeyrinni. Nýja viftan fyrir aftan plöntuna

 Sítrónutré, vaxblóm og eplatré

Arelíubróðir og Bergflétta

Hindberja/brómberjaplantan og svitaslangan

Þetta grænkál hefur gefið af sér í þrjú ár. Vissi ekki að það væri fjölært

Tómataplanta

Fleiri tómatar á leiðinni, muna að frjóvga með því að snerta og hrista reglulega

Blæjuberin að mótast hvert á fætur öðru

Þegar hýðið sölnar eru berin fullþroskuð

Blómin á blæjuberjaplöntunni

Skriðrifs í vatni á að fylla beðin og gefa bragðgóð ber í framtíðinni

Hersla fyrir sumarið. Fremst eru bláar kartöflur, svo salat og sumarblóm

 Búið að sópa og þrífa og taka inn jurtirnar, kvöldið kemur og þá kólnar mikið

Hornið með vínvið og blæjuberjasamfélagi

Prófa aftur að setja niður frá sem kona í Innigörðum gaf mér

Setti þau í mold í dag og plast yfir, hengt upp svo ég gleymi því ekki

Karlinn glaður eftir gott dagsverk

Kerlan ekki síður sæl og nú er hægt að bjóða þér í kaffi

Ljúfa líka voða sátt með þetta. Nú þarf að bera á húsgögnin og setja nýja spýtu á hlaðna vegginn


Þreyttur eftir annasaman dag. Líka búinn að þrífa pabba síns bíl og gera við plastkassa Þóru og svo dytta að hinu og þessu

Sáttur og sæll, nú förum við á Stokkseyri í saltfisk og alles. 

Hindber/Brómber?

Rubus Tayberry er gjöf frá Heiðrúnu okkar.
Hann hefur verið mér erfiður en nú leita ég nánari upplýsinga og reyni að gera betur

Sítrónutré Gests


Gestur kom með nokkrar plöntur í potti til mín 2012 og hafa þær sprottið gríðarlega mikið. Sérstaklega ein. Ég færði þær nær hvor annarri í maí 2015 og ætla að sjá hvað gerist. Hef klippt þær grimmt og hefur önnur alltaf farið upp í topp á húsinu.

Sitthvað sem ég finn á Netinu

Úr mogganum kom þetta hér

Kiwi sett niður apríl 2014

Setti niður fræin og bíð spennt eftir að upp vaxi plöntur






Blæjuber sáð 2014

Upp komu ótal plöntur vorið 2014 og núna fæ ég fullt af berjum. Mjög bragðgóð

Goji berjaplanta

Heiðrún gaf okkur þennan runna. Hann hefur verið erfiður en nú ætla ég að leita mér betri upplýsinga.
Licium Barbarum Boksdoorn