mánudagur, 29. júní 2015

Hellugerð

Rabbabarinn minn vex eins og illgresi. Spurning að nýta blöðin til hellugerðar?

Moltugerð

Ég er með plasttunnu og þar set ég lífrænan úrgang úr eldhúsinu og gras. Svo fer í trékassana hitt og þetta. Nú voru pælingar á FB og þar las ég skemmtilega speki frá snillingunum þar: 

Vilmundur Hansen segir:  Alls ekki setja rótarillgresi í safnhauginn. Þú getur prófað að kæfa það í svörtum plastpoka

Hafsteinn Hafliðason segir:  Svona dót moltnar og verður að skaðlausri (meira að segja fínni) moltu í lokuðum plastpoka. Má gjarna liggja í sólinni og bakast um sumarið. Nothæft næsta vor! 

sunnudagur, 28. júní 2015

Ásta Halla

skrifar svar við að þekja svo gróður drepist.
Ásta Halla Ólafsdóttir Skafðu mesta gróðurinn ofan af beðinu og legðu annaðhvort pappa eða dagblöð ( ca 4-5 síður að þykkt) yfir beðið og þekja það síðan með mold (3-5 cm).....og vökva yfir.......færð þetta fína beð fyrir tiltölulega litla vinnu......það sem gerist er að dagblöðin/pappír með mold yfir kæfa illgresið og skugginn/myrkrið af yfirlaginu hindrar áfram haldandi vöxt illgresis.......og það sem best er að með tímanum jarðgerisrt pappírinn í yfirlaginu og verður að þessari fínu mold.....

Lífrænar varnir, stal af FB

Vilmundur Hansen 

Lífrænar varnir gegn skordýrum
Æskilegt er að hafa gróðurinn í garðinum sem fjölbreyttastan til að koma í veg fyrir mikla fjölgun ákveðinna skordýrategunda. Forðast má að nota plöntur sem meindýrin sækjast í. 
Í lífrænni ræktun er skiptirækt talin ein 
af forsendum farsællar grósku. Skiptiræktun er stunduð vegna þess að matjurtirnar eru misþurftafrekar á næringarefnin í jarðveginum. Hún varnar því einnig að skordýr nái að festa sig í sessi þegar tegundir sem þau sækjast í eru fluttar til.
Til eru margs konar uppskriftir að lífrænu skordýraeitri sem brotnar fljótt niður og hefur ekki langtímaáhrif í jarðvegi. 

Sápa og sódavatn
0,8 lítrar vatn
0,1 lítri sódavatn
0,1 lítri græn- eða brúnsápa
Sápan er leyst upp í vatninu og sódavatninu bætt út í síðast. Hellt í brúsa og úðað yfir plönturnar. 

Rauðspritt og parafínolía
1 lítri vatn
0,1 lítri parafínolía
1 teskeið rauðspritt
Olíunni og rauðsprittinu hrært saman við vatnið og úðað yfir plönturnar.

Rabarbarablöð
10 til 12 blöð af rabarbara
4 matskeiðar grænsápa eða önnur vistvæn sápa
5 lítrar af vatni
Blöðin eru soðin í vatni í lokuðum potti við vægan hita í þrjár klukkustundir. Að því loknu eru mauksoðin blöðin síuð frá, sápunni blandað í heitan vökvann og hrært í þar til sápan leysist upp. Síðan er vökvinn látinn kólna áður en honum er úðað yfir plönturnar. Yfirleitt þarf að úða nokkrum sinnum meðan á maðkatímabilinu stendur til að ná góðum árangri.

laugardagur, 27. júní 2015

Smáhýsi???

Það má hafa kofa allt að 15m2 án þess að sækja um byggingarleyfi. Sjá hér

Fyrirtækið kofar og hús er með smáhýsi. Sjá hér

Ice-Viking smáhýsin eru flott, til dæmis svefntunnan 

Hús og heimili eru með smáhýsi

Lasita.com er hér 


föstudagur, 26. júní 2015

Smádýrin í skóginum


 Asparglytta
 Haustfetalirfa
Haustfeti, fullorðið karldýr

miðvikudagur, 24. júní 2015

Flóra Íslands

Flottur vefur sem vert er að vista hérna. Smella hér












Villigarðurinn. Handbók letingjans er svo hér.