Setti niður fræin og bíð spennt eftir að upp vaxi plöntur
laugardagur, 2. maí 2015
Goji berjaplanta
Heiðrún gaf okkur þennan runna. Hann hefur verið erfiður en nú ætla ég að leita mér betri upplýsinga.
Licium Barbarum Boksdoorn
Licium Barbarum Boksdoorn
Eplatrén okkar 2012
Keyptum tvö tré hjá Ingibjörgu.
Meðalstórt tré með greinar sem standa frekar beint út frá trénu. Hálfsjálffrjóvgandi og er góð frjósort með mörgum öðrum tegundum. Getur þroskað aldin sjálft, en er betra með öðru yrki. Eplin eru gulgræn og sögð góð í eplamús og fleira. Gamalt yrki sem hefur frá 1850 farið um alla Skandinavíu og víðar. Sumarepli. Grunnstofn Antonovka
Nokkuð harðgert yrki frá Rússlandi. Góður frjógjafi. Meðalstór gul aldin þroskast í september. Safaríkt með sætsúru bragði.
Eva Lotta
Auðvelt tré í ræktun, en best er að velja sólríkan og skjólgóðan stað til að fá meiri uppskeru. Eplin eru gul með rauðu og þroskast í október. Safarík og bragðgóð epli sem er auðvelt að tína af trénu þegar þau eru tilbúin til átu.
Transparent Blanche
Meðalstórt tré með greinar sem standa frekar beint út frá trénu. Hálfsjálffrjóvgandi og er góð frjósort með mörgum öðrum tegundum. Getur þroskað aldin sjálft, en er betra með öðru yrki. Eplin eru gulgræn og sögð góð í eplamús og fleira. Gamalt yrki sem hefur frá 1850 farið um alla Skandinavíu og víðar. Sumarepli. Grunnstofn Antonovka
Nokkuð harðgert yrki frá Rússlandi. Góður frjógjafi. Meðalstór gul aldin þroskast í september. Safaríkt með sætsúru bragði. Eva Lotta
Auðvelt tré í ræktun, en best er að velja sólríkan og skjólgóðan stað til að fá meiri uppskeru. Eplin eru gul með rauðu og þroskast í október. Safarík og bragðgóð epli sem er auðvelt að tína af trénu þegar þau eru tilbúin til átu.
Bláberjarunnar
Ég á þrjár tegundir af bláberjarunnum. Einn var keytpur fyrir þrem árum og tveir í fyrrasumar. Þeir hafa verið inni í upphituðu gróðurhúsi en alltaf verið mjög daprir. Nú er ég búin að grafa þá upp og ætla að færa þá út. Setja nýjan jarðveg og réttan áburð og dekra þá í tætlur. Hér eru smá upplýsingar sem ég fann á netinu og svo er ég búin að spyrja á facebook síðu og bíð svara. Smella hér
Jersey:
Mirtillier:
Heerma:
Jersey:
Mirtillier:
Heerma:
föstudagur, 1. maí 2015
Nytjajurtir
Alltaf gaman að safna saman listum um hitt og þetta fróðlegt. Hér eru íslenskar nytjajurtir
Arfinn: Fyrsti arfinn sem kemur upp á vorin er c-vítamínríkastur. Það eru margar arfategundir til en hjartaarfinn sem er í beðum og kartöflugörðum getur stöðvað blæðingar innvortis sem útvortis og herpir saman æðarnar. Hann styrkir þvagfæraslímhúð og er þvagdrífandi.
Vinsælustu jurtirnar á Íslandi eru: vallhumall, ætihvönn, mjaðurt, fjallagrös, smári, blóðberg, baldursbrá, klóelfting og maríustakkur. Skoðum af hverju?
Arfinn: Fyrsti arfinn sem kemur upp á vorin er c-vítamínríkastur. Það eru margar arfategundir til en hjartaarfinn sem er í beðum og kartöflugörðum getur stöðvað blæðingar innvortis sem útvortis og herpir saman æðarnar. Hann styrkir þvagfæraslímhúð og er þvagdrífandi.
Blóðbergið: er sýkladrepandi og slímlosandi. Mikið notað í flensu. Það dregur úr vindverkjum og er líka afbragðs kryddjurt og er þekkt undir heitinu Timian.
Birki er notað gegn allslags gigt og er einkum góð ef nýrun starfa ekki sem skyldi. Það er einnig gott gegn exemi. Best er að týna það fyrri part sumars.
Ætihvönnin er afar gagnleg þegar menn eru að ná sér eftir veikindi, hafa takmarkaða matarlyst og erfiðar hægðir. Styrkir meltingu og vermir. Best er að safna blöðunum á haustin, rótum á sumrin og fræjum þegar þau eru fullþroskuð.
Víðirinn er mögnuð planta, inniheldur salisýlöt sem eru virku efnin í magnýl og hefur svipuð áhrif. Hann er hita- og verkjastillandi og dregur úr bólgum.
Fífillinn er mest notaður sem lækningajurt hér á landi. Hann dregur úr bjúg, styrkir lifur og galblöðru. Hann er talinn vera gagnlegur við svefnleysi og þunglyndi. Fíflamjólk er góð gegn vörtum og líkþornum. Fífilinn skal tína áður en hann blómgast.
Njóli í smyrslformi er góður gegn húðertingu og brunasárum og líka á sár sem gróa illa og ígerð jafnvel komin í.
Afeitrun: Kolbrún grasalæknir gerir afeitrunarblöndu sem hún kallar Suttungamjöð. Jurtirnar styðja lifur, nýru og sogæðakerfi og mælir hún með að hann sé drukkinn í mánuð og þá er hann settur út í soðið vatn. Þá er drykkurinn nk. vorhreinsidrykkur. Flestir mega drekka þennan mjöð nema ekki óléttar konur. Kolbrún segir að einnig megi nota íslenskan þara í duftformi út í bað og sé vatnið heitt dregur þarinn eiturefnin úr líkamanum auk þess að gefa mikið af steinefnum til baka svo maður eflist allur. Þetta líkist helst sjóbaði. Einnig er hægt að setja salt út í baðið og það hefur sömu áhrif. Kolbrún grasalæknir ráðleggur fólki að setja 2-3 msk af þaranum út í baðið og hún segir að þarabað sé gott þegar maður kemur heim þreyttur og þvældur, þarf að gera eitthvað um kvöldið en nennir því ekki. Þarabaðið frískar upp svo mann langar frekar út. Þarinn ku vera góður fyrir liðvandamál sem er afleiðing slælegs hreinsikerfis.
Allir ungir sem aldnir, mjög veikir og óléttar konur geta notað brenninetluna sem er ákaflega blóðhreinsandi.
Heimildir: (Arnbjörg L. Jóhannsdóttir: íslenskar lækningajurtir og Björn L. Jónsson: Íslenskar lækninga- og drykkjarjurtir)
(Tryggvi/ fréttablaðið 11.7.06).
mánudagur, 13. apríl 2015
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




